Erlent

Talíbanar færa ópíumvinnslu úr þéttbýli vegna árása

Gunnar Hrafn Jónsson skrifar
Safi ópíumvalmúans er kallaður ópíum og inniheldur kódein og morfín.
Safi ópíumvalmúans er kallaður ópíum og inniheldur kódein og morfín.
Herforingi Talíbana í Afganistan hefur skipað undirmönnum sínum að stöðva ópíumvinnslu í þéttbýli vegna tíðra loftárása Bandaríkjamanna. Það þykir benda til þess að Talíbanar séu undir þrýstingi frá afgönskum almenningi sem ber skaðann þegar slíkar árásir eru gerðar.

Stór hluti af heróíni heimsins á uppruna sinn í Afganistan. Það er unnið úr ópíum-valmúanum sem sprettur betur en flest annað í hrjúfu fjall-lendinu. Ræktarland er víðast lélegt og bændur sem vilja sjá fjölskyldum sínum farboða eiga ekki annarra kosta völ en að rækta valmúann.

Það hefur gert ópíum að einni helstu tekjulind Talíbana. Þeir eru taldir hafa meira en tuttugu milljarða íslenskra króna í árlegar tekjur af ópíumvinnslu og smygli.

Til að reyna að knésetja Talíbana hafa hersveitir Bandaríkjanna í auknum mæli einbeitt sér að upprætingu ópíumvinnslunnar síðasta hálfa árið. Mikið af vinnslustöðvum og verksmiðjum Talíbana er í þéttbýli, sérstaklega í Helmand hérað. Í hvert sinn sem Bandaríkjamenn varpa sprengjum á slík skotmörk deyr fjöldi almennra borgara.

Á lokaðri samskiptasíðu Talíbana á netinu er þetta til umræðu og þar má meðal annars heyra upptöku af hátt settum herforingja í Helmand héraði. Hann segir að vegna tíðra loftárása undanfarið sé ekki lengur hægt að réttlæta ópíumvinnslu í þéttbýli í Helmand, konur og börn lifi í sífelldum ótta vegna ómannaðra flauga sem fljúgi yfir og varpi sprengjum án fyrirvara.

Á upptökunni segir herforinginni enn fremur að þeir sem brjóti gegn þessari skipun eigi harða refsingu yfir höfði sér. Öll ópíumvinnsla verði framvegis að fara fram í óbyggðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×