Fyrstu íbúðakaup einstaklinga voru samtals 905 talsins á öðrum ársfjórðungi þessa árs og hafa þau ekki verið fleiri á einum ársfjórðungi í áratug, eða frá bankahruni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði en sjóðurinn birti í dag nýjustu mánaðarskýrslu sína. Þar segir að 26 prósent allra íbúðakaupa á öðrum ársfjórðungi hafi verið fyrstu kaup og hefur þetta hlutfall ekki verið hærra frá hruni.
Hlutfallslega voru flest fyrstu kaup á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Suðurnesjum þar sem meira en 30 prósent allra íbúðakaupa á öðrum ársfjórðungi voru fyrstu kaup.
„Í júní seldust um 14% íbúða á höfuðborgarsvæðinu yfir ásettu verði. Íbúðakaup yfir ásettu verði hafa ekki verið hlutfallslega fleiri, samanborið við heildarfjölda viðskipta, síðan í júlí 2017. Miðgildi kaupverðs í kaupsamningum var um 45 milljónir króna í júní en miðgildi ásetts verðs í fasteignaauglýsingum var um 48 milljónir króna.
Sérbýli hækkar meira en fjölbýli
Verð sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið kipp undanfarna mánuði. Á meðan fjölbýli hefur hækkað í verði um 3,7% undanfarna 12 mánuði hefur sérbýli hækkað um 9,3% á sama tímabili. Þetta er viðsnúningur frá því sem áður var því frá janúar 2012 til maí 2017 hækkaði fjölbýli samtals 21% meira í verði en sérbýli.
Vísitala leiguverðs hefur aldrei lækkað jafn mikið milli mánaða
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 2,4% á milli mánaða í júní. Þetta er mesta lækkun vísitölunnar milli mánaða síðan mælingar hófust árið 2011. Leiguverð hefur þó almennt farið hækkandi undanfarið ár en 12 mánaða hækkun vísitölu leiguverðs mælist nú 7,0%,“ segir í tilkynningunni en skýrsluna má nálgast hér.
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2017-09-07T144452.760Z-haukar.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2025-02-14T125946.545Z-2021-10-15T150140.503Z-Jeruzalem_Ormoz.png)