Upplýsingafulltrúi Isavia segir að samkvæmt reglum sé farþegum bannað að gista í Leifsstöð en erfitt sé fyrir fyrirtækið að aðhafast í málinu.

„Þetta var þarna í salnum þar sem innskráningin er og þar lá bara á annan tug fólks í svefnpokunum sínum innan um innskráningarvélarnar og uppi á stólum. Sumir voru farnir að hengja eitthvað til þerris á ofnum. Mér finnst varla boðlegt að fólk geti komið þarna inn og legið í svefnpokum sínum og á dýnum í einhverja fimm sex klukkutíma áður en það fer í flug,“ segir Gils.
Hann segir engan ófrið hafa verið af fólkinu, flestir hafi verið sofandi, en gera má ráð fyrir að um hafi verið að ræða farþega sem eru á leið úr landi og gista þannig síðustu nóttina fyrir flug á vellinum.

„Hann sagði að sumar næturnar hefðu þetta verið allt að hundrað manns. Það væri bara lítið núna. En hann sagði að það væri ekkert hægt að gera.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fluttar hafa verið fréttir af ferðamönnum sem gista í Leifsstöð. RÚV greindi frá því í ágúst í fyrra að tugir ferðalanga hefðu lagst til svefns í flugstöðinni, með tilheyrandi hafurtaski. Þá var greint frá því á Mbl fyrr í sumar að ferðamenn hefðu lagst til svefns í hengirúmum fyrir utan Leifsstöð.
Vísir sendi Isavia fyrirspurn vegna málsins. Svar barst frá Guðjóni Helgasyni, upplýsingafulltrúa Isavia, um hádegi í dag.
„Samkvæmt húsreglum fyrir Flugstöð Leifs Eiríkssonar er fólki bannað að búa sér þar náttstað. Hefur verið unnið út frá því að koma öllum farþegum á fætur áður en innritun hefst milli kl. 3 og 3:30 hvern dag. Þá er gestum bent á að heppilegra sé að kynna sér aðra gistimöguleika í nágrenninu. Það er erfitt viðureignar að koma alfarið í veg fyrir að farþegar gisti í flugstöðvum og er þetta vel þekkt viðfangsefni á flugvöllum víða um heim. Rétt er þó að geta þess að minna hefur verið um þetta í sumar samanborið við síðustu ár,“ segir í svari Isavia.
Fréttin hefur verið uppfærð.
