Grúppan telur tæplega tíu þúsund manns en hún var stofnuð fyrir tveimur árum. Í lýsingu hópsins segir að þar sé hægt að deila myndum og fréttum af körlum að gera merkilega hluti. Stofnandi hópsins er að sögn Jóns Steinars Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi forseti borgarstjórnar. Hún er einn þriggja stjórnenda hópsins í dag.
Upplýsti Jón Steinar að hann hefði verið kallaður ógeð, viðbjóður, kvikyndi, fáviti og spurt hver ætlaði að skála í kampavíni þegar hann væri dauður.
Jón Steinar ræddi upplifun sína í Harmageddon á X-inu í morgun. Hann setti mál sitt í samhengi við brottrekstur Kristins Sigurjónssonar, fyrrverandi rektors hjá Háskólanum í Reykjavík. Hann var rekinn fyrir ummæli um konur í Facebook hópi. Telur Jón Steinar að sömu aðilar og fagni brottrekstri Kristins leyfi sér að tala fjálglega um sig og fleiri í fyrrnefndum hópi.
Viðtalið má heyra hér að neðan.
„Ég man hvað það var mikill léttir þegar mér var hent út af síðunni án nokkurra skýringa,“ segir Marta María.
„Það er nefnilega mjög óþægilegt að lesa níð um sjálfan sig eða vinnu sína dag eftir dag.“
Marta María segir að fleiri samstarfskonur hennar á Morgunblaðinu hafi upplifað létti þegar þær hættu í hópnum. Hún fagnar því að Jón Steinar hafi stigið fram.
„Gott að einhver sagði eitthvað!“
Ólöf Skaftadóttir, einn ritstjóra Fréttablaðsins, tekur undir með Mörtu og segir ofboðslegan létti að vera kominn út úr hópnum. Bubbi Morthens segir það sem Jón Steinar hafi lent í vera ofbeldi.
Ekki náðist í Sóleyju Tómasdóttur, stofnanda og einn stjórnenda grúppunnar, við vinnslu fréttarinnar. Hildur Lilliendahl, annar stjórnandi grúppunar, tjáði blaðamanni að stjórnendurnir hefðu ekki hugsað sér að ræða málið við blaðamenn.