Útlit er fyrir að átökin muni harðna og hafa báðar fylkingar heitið því að gefa ekkert eftir. Forsvarsmenn hers Ísrael hafa skoðað að kalla út varalið hersins en sú ákvörðun var tekin í morgun að fresta því um tíma.
Samkvæmt Times of Israel segir ísraelski herinn (IDF) að rúmlega 400 sprengjum hafi verið varpað á Ísrael frá því á sunnudaginn og að Hamas-liðar sitji á allt að 20 þúsund slíkum sprengjum. Af 400 sprengjum hafa um hundrað verið skotnar niður af loftvarnarkerfi Ísrael. Kerfið er ekki hannað til að meðhöndla svo tíðar árásir.
Árásir Hamas-liða hófust eftir að sérsveitarmenn IDF gerðu árás á Gasa og felldu þar nokkra meðlimi Hamas og einn leiðtoga þegar upp komst um þá. Einn sérsveitarmaður dó í árásinni.
Eins og áður segir er einn látinn í Ísrael. Hann lést þegar sprengja lenti á húsi hans í Ashkelon og særðust tveir alvarlega. Herinn birti nú fyrir skömmu myndband af vettvangi sprengjuárásarinnar þegar björgunarmenn voru að störfum.
Last night, Palestinian terrorists in Gaza fired a barrage of rockets into Israel. One of the rockets struck this house in Ashkelon. This was the scene when Israeli first responders entered. It is graphic, but it’s important we show it.
Hamas sees all of Israel as a target. pic.twitter.com/0Z9B1sCiBQ
— Israel Defense Forces (@IDFSpokesperson) November 13, 2018
Undanfarin misseri hafa sífellt hærri raddir innan ísraelska stjórnmála heyrst kalla eftir harðari aðgerðum gagnvart Hamas á Gasa. Meðal annarra kallaði Avigdor Liberman, varnarmálaráðherra, eftir innrás á Gasa svo hægt væri að reka Hamas-liða á brott þaðan.
Sjá einnig: Varnarmálaráðherra Ísrael vill gera innrás á Gasa
Umfangsmikil mótmæli, óeirðir og ofbeldi við landamæri Ísrael og Gasa hafa staðið yfir frá því í mars og hafa fjölmargir Palestínumenn látið lífið. Óeirðirnar hafa að mestu leyti falið í sér íkveikjur í dekkjum og grjótkasti. Hins vegar hefur komið til skot- og sprengjuárása og á tímabilinu hafa fjölmörg íkveikjutæki verið send svífandi yfir landamærin. Þau tæki hafa valdið kjarreldum og brennt ræktunarland í Ísrael.
Liberman sagði í október að innrás á Gasa myndi tryggja frið á svæðinu í fjögur til fimm ár.
„Við þurfum að veita Hamas alvarlegt högg. Það er eina leiðin til að tryggja ró á nýjan leik,“ sagði Liberman. „Þegar Hamas segir að óeirðirnar muni halda áfram þar til herkvíin verði felld niður, verðum við að móttaka það. Að binda enda á herkvína þýðir aðeins eitt. Að hleypa Hezbollah og Íran inn á Gasa,“ sagði Liberman.
Hér má sjá myndband sem her Ísrael birti af árásunum í gær. Þar að neðan má sjá myndband af loftvörnum Ísrael í morgun og loftárás á Gasa.
RAW FOOTAGE: The skies of southern Israel RIGHT NOW. Dozens of rockets are being fired from #Gaza at Israeli civilians. pic.twitter.com/Iu6QwzUo8l
— Israel Defense Forces (@IDFSpokesperson) November 12, 2018
VIDEO: Rocket attacks from Gaza in Southern Israel continuing this morning. - @NadavEyalDesk pic.twitter.com/rNfeGp5aXk
— Conflict News (@Conflicts) November 13, 2018
VIDEO: Israeli airstrike at dawn this morning against a target in #Gaza. - @NadavEyalDesk pic.twitter.com/bsxGP9DmEz
— Conflict News (@Conflicts) November 13, 2018