Gylfi ánægður með spilamennsku Everton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2018 13:30 Gylfi Þór Sigurðsson í leik á móti Liverpool. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er mjög ánægður með stjórann og spilamennskuna hjá Everton-liðinu en Gylfi og félagar verða í eldlínunni í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Gylfi hrósar knattspyrnustjóranum, spilamennskunni og nýju leikmönnum í viðtali fyrir leikinn á móti Watford í kvöld. „Ég held að þú getur spurt alla leikmennina okkur og þeir munu allir segja að þeir njóti þess að spila fyrir nýjan knattspyrnustjórann,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson í viðtali við Daily Mail.Gylfi Sigurdsson says Everton players love working with Marco Silva https://t.co/gisplyqK85#everton#efc#toffees — Everton FC Live News (@efcliveupdates) December 9, 2018„Hann vill að við spilum sóknarfótbolta og að við vinnum vel án boltans og pressu. Það eru allir með góðan skilning á þessu,“ sagði Gylfi en þetta er heldur betur leikstíll sem hentar okkar manni. Knattspyrnurstjórinn Marco Silva bætti sex nýjum leikmönnum við liðið í sumar en það eru Brasilíumennirnir Richarlison og Bernard, miðverðirnir Kurt Zouma og Yerry Mina auk vinstri bakvarðarins Lucas Digne og portúgalska miðjumannsins Andre Gomes. „Allir nýju mennirnir hafa verið frábærir. Þeir hafa hjálpað okkur að skora fullt af mörkum, að skapa fram á við og hafa komið með hraða inn í liðið,“ sagði Gylfi. „Þeir passa allir inn í það hvernig stjórinn vill að við spilum. Það er eins og maður hafi alltaf spilað með þeim og grunninn að því höfum við lagt á æfingasvæðinu,“ sagði Gylfi. Gylfi býst samt við erfiðum leik á móti Watford í kvöld. „Þetta verður erfiður leikur á móti Watford. Þeir eru með góðan hóp en við erum einbeittir og viljum halda áfram að vinna okkar leiki. Við höfum verið ánægðir með spilamennskuna undanfarna mánuði. Ef við komust í gegnum desember vertíðina í góðu formi þá verðum við vonandi ofarlega í töflunni,“ sagði Gylfi.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Íslenska ofurfólkið keppir við þau bestu í heimi Sport HM í bakgarðshlaupum: Mari hleypur með rifinn liðþófa | „Veit ekki hvað bíður mín“ Sport Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn Enski boltinn Íslensku stelpurnar Evrópumeistarar í fjórða sinn Sport Fannst Inter besti kosturinn: „Ekkert að því að búa í Mílanó“ Fótbolti Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Dagskráin í dag: Landa Víkingar næstum því titlinum? Sport Körfuboltakvöld um Kane: „Finnst hann ekki hafa gert neitt hrikalegt“ Körfubolti Sjáðu stikluna fyrir Kanann: „Þegar hann sagði Ísland hugsaði ég bara um ísbirni“ Sport Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Tottenham - West Ham | Spurs þarf að svara fyrir ófarirnar síðast Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Pabbi Son dæmdur fyrir brot gegn börnum Saka sendur heim vegna meiðsla Leikmaður Brighton var nálægt því að deyja um borð í flugvél Saka fór meiddur út af Sjá meira