Enski boltinn

Leeds tapaði á heimavelli - Jón Daði og Birkir byrjuðu á bekknum

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Birkir í baráttunni í dag
Birkir í baráttunni í dag vísir/getty
Leeds tapaði óvænt á heimavelli í Championship deildinni gegn Hull í dag. Jón Daði Böðvarsson og Birkir Bjarnason byrjuðu báðir á bekknum hjá sínum liðum en komu inn á í síðari hálfleik.



Jón Daði byrjaði á bekknum hjá Reading sem heimsótti QPR. Jón Daði kom inn á á 82. mínútu leiksins en hann náði ekki að setja mark sitt á leikinn, líkt og aðrir leikmenn liðanna, en leikurinn endaði með markalausu jafntefli.



Reading er í næst neðsta sæti deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæti.



Birkir Bjarnason byrjaði einnig á bekknum hjá Aston Villa sem heimsótti Preston. Tammy Abraham kom Aston Villa yfir undir lok fyrri hálfleiks en Ahmed El Mohamady, leikmaður Aston Villa varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar um klukkutími var liðinn af leiknum.



Birkir kom inn á 75. mínútu og fékk fínt færi til þess að skora sigurmarkið en inn fór boltinn ekki. Lokatölur 1-1.



Asston Villa er í 9. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá umspilssæti.



Topplið Leeds náði ekki að halda áfram góðu gengi sínu þegar liðið fékk Hull í heimsókn.



Jarrod Bowen kom Hull yfir á 25. mínútu leiksins. Bowen var svo aftur á ferðinni á 58. mínútu þegar hann tvöfaldaði forystuna.



Leeds náði ekki að koma til baka líkt og í síðustu leikjum sínum. Þrátt fyrir tapið er Leeds enn á toppi deildarinnar.



Norwich sem var í öðru sæti fyrir umferðina fékk Derby í heimsókn en Derby er einnig í toppbaráttu. Ben Godfrey kom heimamönnum í Norwich yfir á 25. mínútu. Skömmu síðar tvöfaldaði Teemu Pukki forystu heimamanna.



Derby tókst hins vegar að koma til baka og jafna leikinn áður en flautað var til hálfleiks. Fikayo Tomori og Mason Mount skoruðu mörk Derby.



Teemu Pukki var aftur á ferðinni og kom Norwich aftur yfir á 81. mínútu. Skömmu síðar þurfti dómari leiksins að flauta leikinn af vegna þess að flóðljósin á heimavelli Norwich hættu að virka og gátu leikmennirnir ekki spilað í myrkrinu, þrátt fyrir að stuðningsmenn Norwich vildu það.



Skömmu síðar hélt leikurinn áfram. Pásan reyndist Derby mönnum afar vel. Florian Jozefzoon kom Derby yfir skömmu eftir að leikurinn hófst að nýju. Jack Morriot skoraði svo sigurmark Derby í uppbótartíma leiksins. Lokatölur 4-3 fyrir Derby í markaleik.



Norwich er í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum frá toppliði Leeds. Derby er í 6. sæti og síðasta umspilssætinu í deildinni. Derby er með fjögurra stiga forskot á Birmingham og QPR sem eru í 7. og 8. sæti.



Öll úrslit Championship deildarinnar má finna hér:



Birmingham 0-0 Brentford

Bolton 0-0 Stoke

Bristol City 1-0 Rotherham

Leeds 0-2 Hull

Middlesbrough 2-0 Ipswich

Milwall 1-0 Nottingham Forest

Norwich 3-3 Derby

Preston 1-1 Aston Villa

QPR 0-0 Reading

Sheffield United 3-0 Blackburn

Swansea 2-2 Wigan

WBA 1-1 Sheffield Wednesday




Fleiri fréttir

Sjá meira


×