Fótbolti

Bayern minnkaði forskot Dortmund í sex stig

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mikill fögnuður Bæjara í kvöld.
Mikill fögnuður Bæjara í kvöld. vísir/getty
Bayern Munchen minnkaði forskot Borussia Dortmund niður í sex stig er Bæjarar unnu 3-0 sigur á Eintracht Frankfurt í kvöld.

Leikurinn var liður í síðustu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar fyrir árlegt jólafrí en næsta umferð fer fram um miðjan desember.

Franck Ribery kom Bayern yfir á 35. mínútu og hann tvöfaldaði forystuna á 79. mínútu er hann kom Bayern í 2-0.

Þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma kom hægri bakvörðurinn Rafinho Bayern í 3-0 sem urðu lokatölurnar.

Dortmund er á toppnum með 42 stig en Bayern er í öðru sætinu með 36 stig. Frankfurt er í fimmta sætinu með 27 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×