Gylfi á skotskónum er Everton tapaði á Old Trafford Anton Ingi Leifsson skrifar 28. október 2018 18:00 Fjórða mark Gylfa á Old Trafford. Magnaður. vísir/getty Manchester United er komið upp í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á Everton í hörkuleik á Old Trafford í dag. United fékk umdeilda vítaspyrnu á 27. mínútu er Idrissa Guye var dæmdur brotlegur fyrir brot á Anthony Martial. John Moss, dómari leiksins, var ekki í vafa og benti á punktinn. Á punktinn steig Paul Pogba og tók sitt athyglisverða tilhlaup. Hann lét þó Jordan PIckford verja frá sér en tók sjálfur frákastið og skoraði. Þannig stóðu leikar í hálfleik en Anthony Martial tvöfaldaði forystuna er hann skoraði með frábæru skoti í fjærhornið. Enski landsliðsmarkvörðurinn kom engum vörnum við. Everton fékk þó færin til þess að koma sér inn í leikinn og gestirnir fengu vítaspyrnu á 77. mínútu. Á punktinn steig Gylfi Sigurðsson og skoraði. Þetta var fjórða mark Gylfa á Old Trafford. Nær komust gestirnir ekki en Gylfi og félagar eru í níunda sæti deildarinnar með fimmtán stig. Gylfi spilaði allan leikinn í dag. United er sæti ofar með tveimur stigum meira.Most @premierleague away goals at Old Trafford.5 - Steven Gerrard4 - Sergio Aguero4 - Darren Bent4 - Edin Dzeko4- Gylfi Sigurdsson pic.twitter.com/mwTfjVG7xi— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) October 28, 2018 Enski boltinn