Birkir skoraði í stórsigri Villa Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 1. janúar 2018 19:38 Birkir hefur nú skorað 2 mörk á tímabilinu, það fyrra í deildarbikarnum í ágúst vísir/getty Birkir Bjarnason skoraði sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu fyrir Aston Villa í stórsigri liðsins á Bristol City í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Birkir, sem litla náð hefur fengið hjá knattspyrnustjóranum Steve Bruce, kom inn á 70. mínútu. Tveimur mínútum síðar var hann mættur í teiginn og setti fyrirgjöf Alan Hutton í netið og skoraði fjórða mark Villa í leiknum. Hörður Björgvin Magnússon var í byrjunarliði Bristol en hann var tekinn út af í hálfleik. Þá var staðan orðin 2-0 fyrir Villa og Lee Johnson ákvað að fara í þriggja manna varnarlínu og þurfti Hörður því að víkja. Leikurinn endaði með 5-0 sigri Villa sem fór með sigrinum upp í 5. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Bristol og Cardiff í 3. og 4. sæti. Fyrr í dag lá Cardiff fyrir QPR á útivelli, Aron Einar Gunnarsson var ekki í hópi Cardiff en hann er nýkominn úr aðgerð.Öll úrslit dagsins: Bolton - Hull 1-0 Derby - Sheffield United 1-1 Lees - Nottingham Forest 0-0 Norwich - Milwall 2-1 Preston - Middlesbrough 2-3 QPR - Cardiff 2-1 Sheffield Wednesday - Burton 0-3 Sunderland - Barnsley 0-1 Aston Villa - Bristol City 5-0 Enski boltinn