Dómgreindarleysi Sakho kostaði Palace stig Anton Ingi Leifsson skrifar 1. október 2018 21:00 Sakho reynir að malda í móinn er Mike Dean bendir á punktinn. vísir/getty Dómgreindarleysi Mamadou Sakho kostaði Crystal Palace stig er liðið tapaði 2-1 fyrri Bournemouth á útivelli í sjöundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn var síðasti leikur sjöundu umferðarinnar og það voru heimamennirnir í Bournemouth sem komust yfir á fimmtu mínútu með marki David Brooks. Þannig stóðu leikar allt þangað til á 55. mínútu er Patrick Van Aaanholt kláraði færið sitt frábærlega en líklega var hann þó rangstæður í aðdraganda marksins. Það stefndi allt í jafntefli en þá greip Mamadou Sakho, varnarmaður Crystal Palace, til sinna ráða. Eftir aukaspyrnu Bournemouth braut hann afar klaufalega fa sér og Bournemouth fékk víti. Junior Stanislas fór á vítapunktinn og skoraði örugglega á mitt markið og þrjú mikilvæg stig til heimamanna í Bournemouth. Þeir eru nú með þrettán stig í sjöunda sæti deildarinnar en Palace er í þrettánda sætinu með sjö stig eftir jafnmarga leiki.Bournemouth have won their first ever Premier League game that's been played on a Monday.Banishing their Monday blues. pic.twitter.com/S0dInCRj5c— Squawka Football (@Squawka) October 1, 2018 Enski boltinn