Lífið

Uppselt á Ed Sheeran

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ed Sheeran kemur til Íslands.
Ed Sheeran kemur til Íslands. Vísir/Getty
Ed Sheeran tónleikarnir sem fara fram 10. ágúst 2019 á Laugardalsvelli seldust upp með hraði í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu Live. 

Rúmlega 20 þúsund manns voru í stafrænni biðröð þegar salan hófst en er það margfalt meira en hefur sést áður á Íslandi.

Hefur þá hér með verið sett Íslandsmet í miðasölu en aldrei hafa fleiri miðar verið seldir á eina tónleika og líklega hefur umframeftirspurnin aldrei verið meiri, en mjög margir þurftu frá að hverfa miðalausir.

Ed Sheeran tilkynnti tónleikaferðalag í 14 löndum auk Íslands og fóru allir tónleikarnir í sölu á sama tíma í morgun.

Uppselt var á Sheeran á undir þremur klukkustundum og hefur aldrei önnur eins miðasala sést hér á landi. 

Boðið var upp á eftirfarandi verðsvæði í morgun:

– Standandi: 15.990 kr

– Sitjandi C: 19.990 kr

– Sitjandi B: 24.990 kr

– Sitjandi A: 29.990 kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.