Messi nú sá sem hefur unnið flesta titla með Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2018 17:30 Lionel Messi með stráknum sínum Thiago. Vísir/Getty
Lionel Messi og félagar í Barcelona byrjuðu tímabilið í gær og unnu titil strax í fyrsta leik. Með því fór Messi framúr Andrés Iniesta. Barcelona tryggði sér þá spænska ofurbikarinn eftir 2-1 sigur á Sevilla. Messi lagði upp sigurmarkið fyrir Ousmane Dembélé tólf mínútum fyrir leikslok en Sevilla menn komust í 1-0 eftir aðeins níu mínútur. Þetta var 33. titill Lionel Messi með Barcelona og hann fór þar með upp fyrir Andrés Iniesta sem hafði unnið 32 titla eins og hann. Andrés Iniesta hætti hjá Barcelona síðasta vor en á síðustu tímabilum höfðu þeir félagar náð í skottið á Xavi Hernández og farið vel framúr honum.Leo #Messihttps://t.co/MZyJDShUEP — FC Barcelona (@FCBarcelona_es) August 13, 2018 Lionel Messi hefur unnið spænsku deildina níu sinnum, hann hefur unnið Meistaradeildina fjórum sinnum, spænska bikarinn sex sinum, þetta var í áttunda sinn sem hann vinnur spænska ofurbikarinn og þá hefur hann þrisvar orðið heimsmeistari félagsliða og þrisvar unnið ofurbikar Evrópu. Xavi Hernández vann á sínum tíma 25 titla með Barcelona og var einn á toppnum þegar hann hætti hjá félaginu vorið 2015. Nú hafa fjórir menn komist upp fyrir hann því auk Messi og Iniesta hafa þeir Gerard Piqué og Sergio Busquets nú unnið fleiri titla en Xavi eða 28 hvor. Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leiknum í gær.#SupercopaBarça@3gerardpique (41')@Dembouz (78') pic.twitter.com/8Vn3laV7ax — FC Barcelona (@FCBarcelona_es) August 13, 2018
Spænski boltinn Mest lesið Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Íslenski boltinn Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Damir á leið til Asíu Íslenski boltinn Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Fótbolti Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Enski boltinn „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Körfubolti Ísak hættur með ÍR Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Enski boltinn Fleiri fréttir Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Hlín og Guðrún báðar tilnefndar: „Það er engin eins og hún“ Heimir í vandræðum með flókinn þjóðsöng: „Ég mun ná þessu“ Sjá meira