Lífið

Kristbjörg og Aron Einar eignuðust dreng: „Kristbjörg er algjör hetja“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kveðjukoss fyrir brottför. Kristbjörg Jónasdóttir smellir einum á landsliðsfyrirliðann laugardaginn 9. júní áður en landsliðið flaug út til Rússlands á HM.
Kveðjukoss fyrir brottför. Kristbjörg Jónasdóttir smellir einum á landsliðsfyrirliðann laugardaginn 9. júní áður en landsliðið flaug út til Rússlands á HM. Vísir/Egill
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, og eiginkona hans, Kristbjörg Jónasdóttir eignuðust í dag sitt annað barn.

Aron greinir frá þessu á Instagram og birtir þar fallega mynd af nýja fjölskyldumeðlimnum.

Drengurinn kom í heiminn klukkan 14:08 að staðartíma í Cardiff. Fyrir eiga þau soninn Óliver Breka.

„Barni og móður heilsast vel. Kristbjörg er algjör hetja,“ segir Aron Einar í færslu sinni á Instagram.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.