Lífið

Ásta Björk og Simon unnu Vild med dans

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Mikil fagnaðarlæti brutust út í sjónvarpssal þegar tilkynnt var að Ásta og Simon hefðu unnið.
Mikil fagnaðarlæti brutust út í sjónvarpssal þegar tilkynnt var að Ásta og Simon hefðu unnið. Instagram/Vild med Dans
Ásta Björk Ívarsdóttir og dansfélagi hennar, leikarinn Simon Stenspil, báru sigur úr býtum í þáttunum Vild med dans sem sýndir eru á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2. Um er að ræða dönsku útgáfuna af þáttunum Allir geta dansað.

Ásta björk var fagdansari í þáttunum og hefur áður tekið þátt sem svokallaður myndavéladansari. Þáttaröðin var sú fimmtánda í röðinni í Danmörku en þættirnir hófu göngu sína árið 2005. Þetta er í fyrsta sinn í sögu þáttanna sem fagdansari sigrar í fyrstu tilraun.

„Ég er glaður og stoltur. Þetta er tryltt,“ sagði Simon þegar úrslitin voru ljós.

 

 
 
 
View this post on Instagram
Mine damer og herrer, vidnerne af Vild med dans 2018! Tillykke @stenspilsneren og @astaivars! #vmd18 #vildmeddans

A post shared by Vild med dans (@vildmeddans) on Nov 23, 2018 at 1:37pm PST

Þátturinn er með vinsælustu sjónvarpsþáttum Danmerkur og horfðu vel yfir milljón manns á lokaþáttinn. Mikil fagnaðarlæti brutust út í sjónvarpssal þegar tilkynnt var að Ásta og Simon væru sigurvegarar. 

Jens Werner, einn dómaranna, sagði að dans þeirra í þættinum hefði verið besti dansinn, í besta lokaþætti í sögu þáttanna. Þau fengu fullt hús stiga fyrir lokadansinn, og alls 114 stig fyrir kvöldið, en þau fluttu þrjá dansa.

Hér fyrir neðan má sjá brot af því besta úr seríunni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.