
„Margar rannsóknir hafa verið gerðar sem staðfesta virkni glucosamin súlfats við einkennum vægrar til meðalsvæsinnar slitgigtar í hné og hefur það lengi verið notað við liðverkjum. Síðan 2007 hefur verið gerð sú krafa að vörur sem innhalda glucosamin séu framleiddar og seldar sem lyf sem tryggir gæði, virkni og öryggi vörunnar,“ segir Hákon Steinsson, lyfjafræðingur hjá LYFIS.
Glucosamin súlfat viðheldur gæðum liðvökva og dregur úr niðurbroti brjósks
Glucosamin LYFIS inniheldur glucosamin súlfat sem er eðlilegur efnisþáttur í liðbrjóski og liðvökva. Rannsóknir hafa sýnt að inntaka glucosamin súlfats örvar nýmyndun mikilvægra „smurefna“ í liðum, m.a. hýalúronsýru. Auk þess hefur glucosamin súlfat reynst hindra virkni brjóskeyðandi ensíma sem og myndun annarra vefjaskaðandi efna. Þessi áhrif geta stuðlað að vægri bólgueyðandi verkun.
Vegna verkunarmáta glucosamins geta liðið nokkrar vikur þar til dregur úr einkennum slitgigtar (einkum verkjum).
Glucosamin LYFIS fæst í 30 skammta pökkum í apótekum og er á góðu verði. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is

* Glucosamin er náttúrulegur efnisþáttur í liðbrjóski og liðvökva
* Fjöldi rannsókna á glucosamin súlfati staðfesta virkni þess
* Einn skammtur á dag
* Leyst upp í vatni – auðvelt að taka inn
* Nær bragðlaust
* Ódýr valkostur