Innlent

Tveir í haldi vegna innbrota í fjölda húsbíla

Birgir Olgeirsson skrifar
Lögreglan á Suðurnesjum er með málið til rannsóknar.
Lögreglan á Suðurnesjum er með málið til rannsóknar. Vísir/GVA
Lögreglan á Suðurnesjum handtók um helgina tvo menn vegna þjófnaðar á fjörutíu gaskútum úr sautján húsbílum í umdæminu í síðustu viku. Skilagjald fyrir hvern gaskút er 8.700 krónur og andvirði þýfisins því 348 þúsund krónur.

Bílarnir eru í eigu tveggja bílaleiga og voru unnar skemmdir á þeim með því að spenna upp geymslurýmin þar sem kútarnir voru geymdir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×