Það er aðeins eitt ósagrað lið í NFL-deildinni eftir leiki gærkvöldsins. Kansas City Chiefs tapaði sínum fyrsta leik er liðið sótti New England Patriots heim. Leikur liðanna var stórkostlegur og vannst á sparki er leiktíminn rann út.
Kansas City hefur venjulega keyrt yfir andstæðinga sína í upphafi leikjanna en New England var að aldrei að fara að leyfa því að gerast. Heimamenn tóku nefnilega völdin og leiddu frá upphafi.
Hið frábæra lið Kansas City kom þó til baka og komst yfir um smá tíma. Það var skammgóður vermir. Kansas jafnaði, 40-40, er þrjár mínútur voru eftir en Tom Brady, leikstjórnandi New England, stýrði liðinu og klukkunni fullkomlega á lokamínútunum. Stilti upp í einfalt vallarmark sem Gostkowski kláraði um leið og leiknum lauk.
Þetta var 200. sigurleikurinn á ferli Tom Brady. Hann kastaði boltanum 340 jarda sem og fyrir einu sigurmarki. Hann kastaði engum bolta frá sér.
Nýja undrabarnið í deildinni, Patrick Mahomes hjá Kansas City, var með 352 jarda og fjögur snertimörk. Hann kastaði aftur á móti tvisvar frá sér. Það var dýrt. Hér má sjá öll helstu tilþrifin í leiknum.
LA Rams er þar með eina liðið sem hefur unnið alla sex leiki sína í upphafi tímabilsins.
Úrslit:
New England-Kansas City 43-40
Atlanta-Tampa Bay 34-29
Cincinnati-Pittsburgh 21-28
Cleveland-LA Chargers 14-38
Houston-Buffalo 20-13
Miami-Chicago 31-28
Minnesota-Arizona 27-17
NY Jets-Indianapolis 42-34
Oakland-Seattle 3-27
Washington-Carolina 23-17
Denver-LA Rams 20-23
Dallas-Jacksonville 40-7
Tennessee-Baltimore 0-21
Í nótt:
Green Bay - San Francisco
Staðan í NFL-deildinni.
Brady stöðvaði Patrick Mahomes
Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Mest lesið



Grealish og Foden líður ekki vel
Enski boltinn



Njarðvík og ÍR fögnuðu bæði tveimur sigrum í kvöld
Íslenski boltinn



