Moura fær tækifæri til að hefna sín á Emery Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. nóvember 2018 18:15 Lucas Moura er orðinn fastamaður í liði Tottenham. vísir/getty
Lucas Moura, leikmaður Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, fær tækifæri til að hefna sín á Unai Emery, knattspyrnustjóra Arsenal, þegar að Lundúnarliðin mætast í borgarslag í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Emery setti Moura í frystikistuna hjá Paris Saint-Germain þegar að þeir unnu saman þar en Moura hefur látið hafa eftir sér að verstu sjö mánuðir ferilsins voru undir stjórn Emery í frönsku höfuðborginni. Nú mætast þeir í fyrsta sinn með sínum nýju liðum en Moura er yfir það hafinn að gera lítið úr Emery eða tala illa um hann í aðdraganda leiksins. Hann virðir Emery og ákvarðanir hans í fortíðinni. „Ég verð alltaf að virða ákvörðun þjálfarans. Ég veit alveg að þetta var erfitt fyrir hann því hann þurfti alltaf að velja einhverja ellefu til að byrja leikina,“ segir Moura í viðtali við Sky Sports. „Ég er ekkert að spá í því sem er búið að gerast heldur horfi ég fram á veginn og spái í hvernig ég get unnið þennan leik. Ég hef ekkert á móti Unai. Ég virði hann. Hann er mjög góður þjálfari.“ „Ég verð bara að sýna honum að ég á skilið að spila með stóru liði og að ég elska að spila fótbolta. Ég verð bara að gleyma þessum síðustu mánuðum mínum hjá PSG,“ segir Lucas Moura.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Íslenska ofurfólkið keppir við þau bestu í heimi Sport „Hún er hjartað og lungað í liðinu“ Körfubolti Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Handbolti Dagskráin í dag: Botnslagir í Bestu Sport Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Fótbolti „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Íslenski boltinn Ásta og Laufey valdar í úrvalslið EM Sport PSG aftur á toppinn Fótbolti „Óskiljanlegt að setja Erlend í þetta verkefni" Fótbolti Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn Enski boltinn Fleiri fréttir Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Sjá meira