Menning

Gísli Örn lét sig ekki vanta á frumsýningu Nínu Daggar

Sylvía Hall skrifar
Gísli Örn Garðarsson ásamt þeim Berki Jónssyni, leikmyndahönnuði sýningarinnar, og Birnu Helgadóttur.
Gísli Örn Garðarsson ásamt þeim Berki Jónssyni, leikmyndahönnuði sýningarinnar, og Birnu Helgadóttur. Vísir/Sylvía
Leikritið Eitur var frumsýnt fyrir fullum sal í Borgarleikhúsinu í kvöld, en um er að ræða margverðlaunaða hollenska leiksýningu eftir skáldið Lot Vekemans.

Þau Nína Dögg Filippusdóttir og Hilmir Snær Guðnason fara með aðalhlutverk í sýningunni sem fjallar um fyrrverandi hjón sem hittast aftur við óvæntar aðstæður, tíu árum eftir skilnað. Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir leikritinu sem fer vel af stað, en uppselt er á fyrstu fjórtán sýningarnar.

Margir helstu menningarunnendur landsins létu sig því ekki vanta á frumsýninguna í Borgarleikhúsinu í kvöld til þess að sjá verkið lifna við á Litla sviðinu.

Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur og Tinna Gunnlaugsdóttir, fyrrum Þjóðleikhússstjóri.Vísir/Sylvía
Ragna Sigurðardóttir, þýðandi verksins, Kristín Jóhannesdóttir, leikstjóri og Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld og allsherjargoði.Vísir/Sylvía
Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, ásamt eiginkonu sinni Önnu-Lind Pétursdóttur prófessor í sálfræði.Vísir/Sylvía
Baldvin Z leikstjóri ásamt eiginkonu sinni Heiðu Sigrúnu Pálsdóttur.Vísir/Sylvía
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir og Pétur Rúnar Heimisson, markaðsstjóri Borgarleikhússins.Vísir/Sylvía
Unnur Ýr Guðráðsdóttir og Jóhannes Páll Sigurðarson.Vísir/Sylvía

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.