Solskjær sér fyrirliðaefni í Paul Pogba Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2019 09:00 Ole Gunnar Solskjær fagnar sigri með Paul Pogba og Fred. Getty/Stu Forster
Paul Pogba var nánast útskúfaður undir það síðasta í stjóratíð Jose Mourinho en veröld Frakkans hefur algjörlega breyst eftir að Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær settist í stjórastólinn á Old Trafford. Pogba fékk algjört aðalhlutverk um leið og Solskjær tók við og nú er sá norski byrjaður að tala um Pogba sem framtíðarfyrirliða Manchester United. Paul Pogba var fyrirliði í þremur leikjum í haust þegar Antonio Valencia meiddist í september en Jose Mourinho tók síðan fyrirliðabandið af honum og henti honum síðan út í horn.Ole Gunnar Solskjaer says Paul Pogba is captain material despite Jose Mourinho taking the job off him earlier this season. Read morehttps://t.co/RYcMQvNjD4#MUFCpic.twitter.com/oVEiuSbVY6 — BBC Sport (@BBCSport) January 25, 2019„Ég þekki strákinn frá fyrri tíð og hann er leiðtogi,“ sagði Ole Gunnar Solskjær á blaðamannafundi fyrir bikarleikinn á móti Arsenal í kvöld. Solskjær var nefnilega þjálfari 23 ára liðs United frá 2008 til 2010. „Hann virkjar fólk. Aðrir skipta hann máli og hann vill ná árangri,“ sagði Solskjær. Hann sér hann sem framtíðarfyrirliða Manchester United. Pogba hefur vakið talsvert umtal og gagnrýni vegna hegðunar sinna utan vallar og þá hefur verið mikið gert grín af hægum aðhlaupum hans í vítaspyrnum. Eftir að Solskjær mætti á staðinn hefur hann aftur á móti verið óstöðvandi með fimm mörk og fjögur stoðsendingar í sex deildarleikjum sem allir hafa unnist. „Paul er mjög stór persónuleiki og þannig er hann bara. Samfélagsmiðlar eru núna hluti af okkar lífi. Þannig er bara þjóðfélagið núna. Við erum með ákveðnar reglur og gerum enga athugasemd við þetta hjá honum ef hann fylgir þeim,“ sagði Solskjær. Ashley Young hefur verið fyrirliði í fjarveru Antonio Valencia og Solskjær breytti því ekki þegar hann tók við af Mourinho. Norðmaðurinn er aftur á móti líklegur til að gera Paul Pogba að fyrirliða liðsins fái hann að halda áfram sem stjóri Manchester United næsta haust.Bikarleikur Arsenal og Manchester United fer fram á Emirates-leikvanginum og hefst klukkan 19.55 en hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.
Enski boltinn Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira