Fótbolti

Lengi getur vont versnað hjá Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vinicius er hann meiddist á þriðjudag.
Vinicius er hann meiddist á þriðjudag. vísir/getty
Síðustu misseri hafa verið erfið hjá Real Madrid og til þess að bæta gráu ofan á svart þá verður ungstirni liðsins, Vinicius Junior, lengi frá.

Hinn 18 ára gamli Vinicius hefur slegið í gegn í vetur og verið ljósi punkturinn í leik liðsins.

Real féll úr leik í Meistaradeildinni í vikunni er liðið steinlá gegn Ajax. Vinicius meiddist í leiknum og fór grátandi til búningsklefa.

Nú segja spænskir fjölmiðlar að hann verði frá í allt að tvo mánuði þannig að tímabilinu hjá honum er svo gott sem lokið.

Hann átti að spila sína fyrstu landsleiki fyrir Brasilíu síðar í þessum mánuði en það verður eitthvað að bíða að hann fái að klæðast þeim merka landsliðsbúningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×