Fótbolti

Stoltur að stuðningsmenn Real syngi nafn hans

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Mourinho stýrði Real Madrid frá 2010 til 2013
Mourinho stýrði Real Madrid frá 2010 til 2013
Jose Mourinho segist vera stoltur af því að stuðningsmenn Real Madrid kyrji nafn hans og kalli eftir því að hann snúi aftur til spænsku höfuðborgarinnar.

Real Madrid datt út úr Meistaradeild Evrópu í gærkvöld með 4-1 tapi gegn Ajax á heimavelli og er Santiago Solari talinn sitja á brúninni á stjórastólnum.

Sky Sports hefur eftir fyrrverandi forseta Real Ramon Calderon að Mourinho sé efstur á óskalista Rela Madrid og núverandi forráðamenn félagsins hafi haft samband við portúgalska stjórann.

Mourinho var spurður út í málið á spænsku sjónvarpsstöðinni El Chiringuito.

„Ég er stoltur af því [að stuðningsmennirnir syngi nafn hans] en Real er með stjóra.“

„Það hafa engin samskipti átt sér stað á milli mín og félagsins. Þetta eru sögusagnir, og sögusagnir eru slæmar í fótbolta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×