Fengu háttvísiverðlaun fyrir að leyfa andstæðingnum að jafna Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 24. september 2019 06:00 Marcelo Bielsa vísir/getty
Leeds United og Marcelo Bielsa, knattspyrnustjóri, fengu háttvísiverðlaun FIFA á verðlaunahófi alþjóðasambandsins í gærkvöld. Verðlaunin fékk Leeds fyrir að leyfa Aston Villa að skora mark í leik þeirra. Leeds og Aston Villa mættust í mikilvægum leik á endaspretti síðasta tímabils í ensku B-deildinni. Bæði lið voru í hörku baráttu um sæti í úrvalsdeildinni og eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Mateusz Klich fyrir Leeds. Markið kom hins vegar þegar framherji Villa lá meiddur í jörðinni og ætlunin hafði verið að setja boltann út fyrir svo hann gæti fengið aðhlynnigu. Klich tók hins vegar ekki þátt í því og skoraði. Bielsa ákvað þá að skipa liði sínu að leyfa Villa að skora til þess að jafna leikinn. Leiknum lauk 1-1 og úrslitin reyndust Leeds dýrkeypt þar sem félagið missti af sæti upp í úrvalsdeild. „Sumir í fótboltaheiminum segja að sigurinn sé það eina sem skipti máli, eini tilgangurinn með því að leika íþróttina,“ sagði í umsögn FIFA um viðurkenninguna. „Það eru aðrir sem hafa önnur gildi ofar því að vinna. Það sem var í húfi gerir gjörðir Bielsa enn merkilegri og fær lið hans háttvísiverðlaunin fyrir.“
England FIFA Fótbolti Mest lesið Gagnrýna vinnubrögð HSÍ og segja eftirmálana „skammarlega“ Handbolti De Bruyne bjargaði City gegn C-deildarliðinu Enski boltinn Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar Íslenski boltinn „Svo stolt af þér að vera alltaf trú sjálfri þér“ Sport Túlkurinn stal meira en tveimur milljörðum króna Sport Uppgjörið: Fram - Afturelding 34-32 | Ótrúleg endurkoma eftir að hafa verið sjö mörkum undir í hálfleik Handbolti Sjáðu sigurmark Örvars og önnur mörk úr Lengjubikarnum Íslenski boltinn Sigurður stýrir báðum liðum Keflavíkur Körfubolti Fær fyrirliðabandið nítján ára gömul og aðeins á öðru ári í atvinnumennsku Fótbolti Biður liðið um að láta ekki blekkjast af sigri gærdagsins Fótbolti Fleiri fréttir Willum og félagar úr leik eftir svekkjandi tap gegn Newcastle Í beinni: Brighton - Chelsea | Úrvalsdeildarslagur á suðurströndinni Stefán og félagar áfram í FA bikarnum eftir vítaspyrnukeppni Sjóðheitur Jón Daði gaf fyrstu stoðsendinguna De Bruyne bjargaði City gegn C-deildarliðinu Maguire hetja United í bikarnum Unai Emery býst við miklu af Rashford Rodri í Meistaradeildarhópi Manchester City Sjáðu mörkin sem skutu Liverpool á Wembley „Félagið setur mig í skítastöðu“ Spilaði leik með sirloin steik í skónum Tvíburar mætast í enska bikarnum: „Þetta verður mjög skrýtið“ Liverpool í tuttugasta og síðasta sæti í eyðslu Vill að stuðningsfólkið syngi söng um sig og noti ABBA lag „Þeir voru of góðir fyrir okkur“ Liverpool mætir Newcastle á Wembley eftir stórsigur á Spurs Sjáðu mörkin sem skutu Newcastle á Wembley Newcastle gerði grín að afsökun Arteta Martröð fyrir Man. Utd og Slátrarann Newcastle lét draum Víkings rætast Liverpool væri ekki á toppnum án VAR Newcastle á Wembley eftir aðra kennslustund í að refsa Arsenal Dagný og félagar komust ekki í úrslitaleikinn Guardiola þarf skilja einn nýju mannanna eftir útundan Segir að Ronaldo eigi þátt í óförum Rashford Risavaxið verkefni Arsenal í norðrinu: „Leggjum allt undir“ Útskýrði af hverju Napoli fékk ekki Garnacho Trent úr leik en mætir mögulega Guðlaugi Victori Arteta vonsvikinn Markahrókur City varð fyrir kvenhatri og rasisma Sjá meira
Uppgjörið: Fram - Afturelding 34-32 | Ótrúleg endurkoma eftir að hafa verið sjö mörkum undir í hálfleik Handbolti
Uppgjörið: Fram - Afturelding 34-32 | Ótrúleg endurkoma eftir að hafa verið sjö mörkum undir í hálfleik Handbolti