City á toppinn eftir sjöunda sigurinn í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2019 14:15 Agüero kemur City í 2-0. vísir/getty Manchester City vann 0-2 sigur á Fulham á Craven Cottage í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var sjöundi deildarsigur City í röð. Liðið er með eins stigs forskot á Liverpool á toppi deildarinnar. Það tók City aðeins fimm mínútur að brjóta ísinn. Bernardo Silva skoraði þá með góðu skoti í fjærhornið eftir sendingu frá Sergio Agüero. Silva endurgalt svo greiðann á 27. mínútu, sendi boltann á Agüero sem skoraði sitt nítjánda deildarmark í vetur. Argentínumaðurinn er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni. Fulham hefur tapað átta leikjum í röð og er í nítjánda og næstsíðasta sæti deildarinnar. Enski boltinn