Fótbolti

Annað tap Al Arabi í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það gengur ekki nógu vel hjá Heimi með Al Arabi.
Það gengur ekki nógu vel hjá Heimi með Al Arabi. vísir/getty
Strákarnir hans Heimis Hallgrímssonar í Al Arabi töpuðu fyrir Al Ahli Doha, 2-1, í katörsku úrvalsdeildinni í dag.

Þetta var annað tap Al Arabi í röð og það þriðja í síðustu fimm leikjum.

Meshal Abdullah kom Al Ahli Doha yfir á 24. mínútu en Victor Vasquez, fyrrverandi leikmaður Barcelona, jafnaði eftir rúman klukkutíma.

Mohammed Al Bayati skoraði svo sigurmark Al Ahli Doha fjórum mínútum fyrir leikslok.

Al Arabi er í 6. sæti deildarinnar með 27 stig eftir 20 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×