Fimm lönd á fimm árum í atvinnumennsku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2019 18:00 Sverrir Ingi Ingason. Getty/Simon Hofmann
Landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason er nú kominn í grísku deildina eftir að PAOK keypti hann í gær af rússneska félaginu FK Rostov. Sverrir Ingi Ingason fór út í atvinnumennsku árið 2014 og Grikkland verður fimmta landið hans á þessum fimm árum. Sverrir er Bliki en fór til norska félagsins Viking í byrjun ársins 2014. Sverrir spilaði aðeins eitt tímabil með Viking en fór til KSC Lokeren í Belgíu í febrúarbyrjun 2015. Aftur var Sverir á faraldsferli í janúarglugganum þegar hann fór frá KSC Lokeren til Granada CF á Spáni í janúar 2017. Sverrir kláraði hins vegar aðeins tímabilið með spænska liðinu sem seldi hann til FK Rostov í Rússlandi í júlí 2017. Sverrir var því á sínu öðru tímabili með FK Rostov þegar PAOK blandaði sér í málið og keypti varnarmanninn öfluga til Grikklands í gær. Sverrir Ingi Ingason er enn bara 25 ára gamall en mun eftir fyrsta leik með PAOK hafa náð því að spila í efstu deild í sex löndum. Sverrir Ingi skrifaði undir þriggja ára samning við gríska liðið og nú er að sjá hvort hann endist lengur þar en hjá fyrrnefndum félögum sínum í Noregi, í Belgíu, á Spáni og í Rússlandi.Sex lönd hjá Sverri Inga og ferillinn varla hálfnaður: Ísland - Breiðablik Noregur - Viking FC Stavanger Belgía - KSC Lokeren Spánn - Granada CF Rússland - FK Rostov Grikkland - PAOK
Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Hildur hætti eftir 30. hring og nú eru níu eftir Sport Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Fótbolti Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Enski boltinn FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti Albert fór meiddur af velli en liðið fór á kostum Fótbolti Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“ Fótbolti Sexfaldur Ólympíugullverðlaunahafi dauðvona Sport Fleiri fréttir FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Elías Már á skotskónum Hlín heldur áfram að skora en fyrsta tapið hjá Guðrúnu Liverpool tyllti sér á toppinn Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Albert fór meiddur af velli en liðið fór á kostum Sædís meistari á fyrsta ári í atvinnumennsku Kvaradona kom toppliðinu til bjargar Cecilía hélt hreinu á móti toppliðinu Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“ Sjáðu dramatísk sigurmörk, vítaklúður Gylfa og öll mörkin úr Bestu í gær Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Messi kom inn á í hálfleik og skoraði þrennu PSG aftur á toppinn Sjálfsmark skaut Juvents á toppinn Diljá Ýr skoraði í stórsigri Leuven Harry Kane með þrennu í stórsigri Bayern Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Real Madrid upp að hlið Barcelona á toppnum „Þarft að vinna uppi á Skaga til þess að verða Íslandsmeistari“ Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Birkir kom inn á og skoraði sárabótarmark „Óskiljanlegt að setja Erlend í þetta verkefni" „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Þrjú stig í sarpinn en Orri leitar að markaskónum Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Sjá meira