Fótbolti

Hólmbert og Aron Elís á skotskónum er Álasund sló út Molde

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hólmbert í leik með Álasund.
Hólmbert í leik með Álasund. visir/getty
Hólmbert Aron Friðjónsson og Aron Elís Þrándarson voru báðir á skotskónum er Álasund vann 4-0 stórsigur á stórliði Molde í norska bikarnum.

Álasund er því komið í 32-liða úrslit keppninnar en Hólmbert kom Álasund yfir á fjórtándu mínútu og tvöfaldaði forystuna tveimur mínútum síðar.





Þriðja markið skoraði Sondre Brunstad Fet á 55. mínútu og fjórða markið skoraði Víkingurinn Aron Elís Þrándarson þremur mínútum síðar.

Algjörir yfirburðir Álasund sem leikur í norsku B-deildinni á meðan Molde er á toppi norsku úrvalsdeildarinnar.

Daníel Leó Grétarsson, Davíð Kristján Ólafsson, Aron Elís Þrándarson og Hólmbert Aron Friðjónsson byrjuðu allir inn á hjá Álasund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×