Dortmund kom til baka gegn Inter og Håland heldur áfram að skora | Öll úrslit kvöldsins Anton Ingi Leifsson skrifar 5. nóvember 2019 22:00 Leikmenn Dortmund fagna í kvöld. vísir/getty Dortmund vann mikilvægan 3-2 sigur á Inter á heimavelli er liðin mættust í F-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Það var kraftur í Inter í fyrri hálfleik. Lautaro Martinez kom Inter yfir á 9. mínútu og fimm mínútum fyrir leikhlé tvöfaldaði Matias Vecino forystuna. Allt annað lið Dortmund kom út í síðari hálfleikinn. Achraf Hakimi minnkaði muninn á 51. mínútu og þrettán mínútum síðar jafnaði Julian Brandt. Hakimi var ekki hættur því á 77. mínútu skoraði hann sigurmarkið og tryggði Dortmund 3-2 sigur. Þeir eru því í 2. sætinu með sjö stig, stigi á eftir Barcelona, en Inter er í 3. sætinu með fjögur stig.9.0 ON A RICHTER SCALE pic.twitter.com/oUwQcmmbaY— Borussia Dortmund (@BlackYellow) November 5, 2019 Napoli og Salzburg gerðu 1-1 jafntefli á Ítalíu. Erling Braut Håland kom Salzburg yfir úr vítaspyrnu á 11. mínútu en Hirving Lozano jafnaði fyrir Napoli. Liverpool er á toppi riðilsins með níu stig, Napoli átta, Salzburg fjögur og Genk eitt.7 - Erling Haaland has scored seven goals in his first four Champions League appearances – two more than any other player in the competition’s history. Wunderkind. pic.twitter.com/thPucN0KNM— OptaJoe (@OptaJoe) November 5, 2019 Það er svo gríðarleg spenna í H-riðlinum þar sem Valencia vann 4-1 sigur á Lille eftir að hafa lent 1-0 undir í leiknum. Chelsea, Valencia og Ajax eru öll með fjögur stig eftir leiki kvöldsins og það verður spenna í síðustu tveimur umferðunum þar.Öll úrslit kvöldsins:E-riðill: Liverpool - Genk 2-1 Napoli - Salzburg 1-1F-riðill: Barcelona - Slavia Prag 0-0 Dortmund - Inter 3-2G-riðill: Zenit - Leipzig 0-2 Lyon - Benfica 3-1H-riðill: Chelsea - Ajax 4-4 Valencia - Lille 4-1 Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti