Lífið

Bjargaði barni eftir bílveltu

Andri Eysteinsson skrifar
Danny Trejo er 75 ára gamall.
Danny Trejo er 75 ára gamall. Getty/Axelle Bauer-Griffin
Hasarhetjan Danny Trejo sem gert hefur garðinn frægann í kvikmyndum á borð við Desperado, From Dusk till Dawn, Grindhouse, Machete og Spy Kids drýgði í gær hetjudáð þegar hann bjargaði barni úr bíl sem hafði oltið eftir árekstur. BBC greinir frá.



Hinn 75 ára gamli Trejo greindi sjálfur frá atburðum gærdagsins á Instagram síðu sinni. Þar sagði bandaríski leikarinn að hann hafi orðið vitni að því þegar ökumaður keyrði bíl sínum yfir á rauðu, klessti á annan bíl sem hafi í kjölfarið hvolfast. Í þeim bíl voru ungabarn og amma barnsins.

 
 
 
View this post on Instagram
I helped rescue a baby after driver ran red light, causing 2-car crash in Sylmar . . . #dannytrejo #sylmar #ktla #abc7

A post shared by Danny Trejo (@officialdannytrejo) on Aug 7, 2019 at 5:57pm PDT

Trejo ásamt vegfaranda, Monicu Jackson, héldu strax til hjálpar og björguðu barninu úr bílnum en amma barnsins hafði orðið fyrir meiðslum. Trejo og Jackson hvöttu þá bílstjóra til þess að vera með fulla einbeitingu í umferðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.