Hazard afgreiddi West Ham og skaut Chelsea í þriðja sætið Anton Ingi Leifsson skrifar 8. apríl 2019 20:45 Hazard fagnar í kvöld. Eden Hazard var hetja Chelsea sem vann mikilvægan 2-0 sigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni. Fyrra mark Hazard var af dýrari gerðinni. Chelsea er í mikilli baráttu um að tryggja sér eitt af fjórum efstu sætunum og var því mikið undir hjá þeim bláklæddu í kvöld gegn West Ham sem hefur ollið vonbrigðum á leiktíðinni. Fyrra markið kom á 24. mínútu en markið var ansi fallegt. Belginn dansaði framhjá hverjum varnarmanni West Ham á fætur öðrum og kom svo boltanum framhjá Lukasz Fabianski í marki West Ham.Eden Hazard has now scored more Premier League goals (85) than Cristiano Ronaldo (84) We'll just leave that here... pic.twitter.com/Kz0VMm4nuw — Coral (@Coral) April 8, 2019 Staðan var 1-0 í hálfleik og West Ham var aðeins að ná að pressa heimamenn til baka. Þeir náðu þó ekki að skora og annað mark Chelsea skoraði Hazard í uppbótartíma með öðru laglega skoti. Lokatölur 2-0. Chelsea er eftir sigurinn í þriðja sæti deildarinnar með 66 stig en liðin þrjú fyrir neðan þá; Tottenham (64 stig), Arsenal (63 stig) og Manchester United (61 stig) eiga öll leiki til góða. West Ham er í ellefta sætinu. Enski boltinn