Napoli gerði markalaust jafntefli gegn Milan: Vatn á myllu Juventus

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leik kvöldsins.
Úr leik kvöldsins. vísir/getty
AC Milan og Napoli gerðu í kvöld markalaust jafntefli er liðin mættust í 21. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Leikið var á San Síró en þrátt fyrir tíu skot á markið í leiknum; fimm hjá hvoru liði þá fór ekkert skotið í markið. Lokatölur 0-0.

Úrslitin eru vatn á myllu Juventus en liðið getur á morgun náð ellefu stiga forskoti er liðið sækir Lazio heim. Flautað verður til leiks klukkan 19.30 í beinni á Stöð 2 Sport.

Napoli er í öðru sætinu með 48 stig en Milan er í fjórða sætinu með 35 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira