Rannsaka kynþáttaníð í garð Mo Salah í West Ham leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2019 13:45 Mohamed Salah á London leikvanginum á mánudagskvöldið. Getty/Richard Heathcote
Stuðningsmenn West Ham eru sakaðir um að hafa verið með kynþáttafordóma í garð Mohamed Salah í leik West Ham og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á mánudagskvöldið. Rannsókn er hafin á vegum West Ham á umræddu meintu kynþáttaníði en Sky Sports segir frá málinu. Mohamed Salah skoraði ekki í leiknum þar sem Liverpool gerði 1-1 jafntefli og tapaði tveimur dýrmætum stigum í titilbaráttunni. Umrætt kynþáttaníð varð meðal annars þegar Mohamed Salah fór að taka hornspyrnu í leiknum en í myndband á samfélagsmiðlum má heyra stuðningsmenn West ham ausa mjög ljótum orðum og kynþáttahatri yfir hin egypska Salah.BREAKING: @WestHamUtd investigating alleged racist abuse aimed at @LFC forward Mohamed Salah during 1-1 draw on Monday night. #SSNpic.twitter.com/tPlfUPbnNo — Sky Sports News (@SkySportsNews) February 6, 2019 Twitter-notandi skrifaði líka um atvik í leiknum á samfélagsmiðlunum sínum. „Ég fór að horfa á leik West Ham og Liverpool og heyrði þar ógeðslega hluti. Fólk eins og þetta á ekki skilið að eiga einhvern stað í okkar þjóðfélagi hvað þá að mega mæta á fótboltaleiki,“ skrifaði hann. West Ham fór strax í málið og í yfirlýsingu segir félagið að það hafi ekkert umburðarlyndi gagnvart ofbeldi, móðgandi hegðun eða kynþáttahatri og að hjá félaginu eigi að vera pláss fyrir alla. West Ham sagði blaðamanni Sky Sports frá því að nú muni það leita allra leiða til að finna viðkomandi níðinga og í framhaldi verður hegðun þeirra tilkynnt til lögreglu og þeir settir í bann.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Íslenska ofurfólkið keppir við þau bestu í heimi Sport „Hún er hjartað og lungað í liðinu“ Körfubolti Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Handbolti Dagskráin í dag: Botnslagir í Bestu Sport „Gæti verið minn síðasti leikur á laugardaginn“ Íslenski boltinn Sjáðu sigurmarkið sem dæmt var af Skagamönnum Fótbolti PSG aftur á toppinn Fótbolti Ásta og Laufey valdar í úrvalslið EM Sport „Óskiljanlegt að setja Erlend í þetta verkefni" Fótbolti Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn Enski boltinn Fleiri fréttir Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Hlerunarbúnaður í klefa United á Villa Park tók upp ræður Ten Hag Jason lagði upp í sigri gegn liði 92-árgangsins Sjá meira