Fótbolti

Maradona: FIFA hefur ekkert breyst

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Maradona og Infantino eru hættir að knúsast.
Maradona og Infantino eru hættir að knúsast. vísir/getty
Besti knattspyrnumaður allra tíma, Diego Armando Maradona, segir að brotthvarf Sepp Blatter frá FIFA hafi engu breytt. Sambandið sé enn það sama undir stjórn Gianni Infantino.

Maradona hætti á dögunum í vinnu fyrir FIFA en hann var hluti af „FIFA legends“. Eitthvað mikið virðist hafa komið upp á því Argentínumaðurinn er brjálaður.

„Ég sendi Infantino bréf þar sem ég sagði af mér sem fyrirliði FIFA legends. FIFA hefur ekkert breyst þó svo Blatter sé farinn,“ sagði Maradona svekktur og segist ekki hafa fengið góða meðferð frá alþjóðasambandinu.

„Við vorum settir á hótelherbergi með Marco van Basten og öðrum leikmanni. Það var komið fram við okkur eins og við værum litlir hundar. Það var algjört virðingarleysi í okkar garð. Þess vegna hætti ég og nú mun ég segja frá því sem ég veit um þetta nýja FIFA.“

Maradona lét þessi orð falla á blaðamannafundi eftir leik hjá liði sínu, Dorados de Sinaloa. Þar fór Argentínumaðurinn mikinn og skoraði meðal annars á Zvonimir Boban, aðstoðarframkvæmdastjóra FIFA, í hnefaleikabardaga.

Einhver misskilningur varð á milli Maradona og Boban á hótelinu þar sem FIFA goðsagnirnar gistu.

„Ég vil segja við Boban að ef hann vill líta vel út þá ætti hann að fara í hnefaleikahringinn. Hann hefði ekki átt að koma á hótelið og reiðast. Það versta er að hann var sendur af einhverjum. Sá er Infantino. Ég er ekki tvítugur strákur, ég er 58 ára gamall. Þetta særir mig því ég hafði trú á þessu fólki. Ég geri það ekki lengur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×