Öruggt hjá Chelsea á Stamford Bridge

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty
Chelsea átti svo gott sem fullkomið kvöld í Evrópudeildinni í kvöld, öruggur sigur og ekkert útivallarmark fengið á sig.

Chelsea mætti Dynamo Kiev í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitunum á Stamford Brigde.

Pedro skoraði fyrsta mark leiksis á 17. mínútu eftir frábæra hælsendingu Olivier Giroud. Annað mark Chelsea gerði Willian með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu og undir lok leiksins skoraði Callum Hudson-Odoi þriðja markið.

Gestirnir frá Úkraínu náðu ekki einu skoti á markið í leiknum og voru yfirburðir Chelsea miklir.

Napólí vann einnig öruggan þriggja marka sigur á Red Bull Salzburg og Valencia vann Krasnodar 2-1.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira