Fótbolti

Átta stelpur missa sætið sitt í byrjunarliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sif Atladóttir kemur aftur inn í byrjunarliðið og tekur við fyrirliðabandinu af Söru.
Sif Atladóttir kemur aftur inn í byrjunarliðið og tekur við fyrirliðabandinu af Söru. Vísir/Getty
Jón Þór Hauksson gerir átta breytingar á byrjunarliði sínu fyrir þriðja og síðasta leik íslenska kvennalandsliðsins í Algarve-bikarnum.

Íslensku stelpurnar mæta í dag heimastúlkum í Portúgal í leiknum um níunda sætið á mótinu. Leikurinn hefst klukkan 14.30 að íslenskum tíma.

Íslenska liðið gerði markalaust jafntefli við Kanada í fyrsta leiknum en steinlá svo 4-1 fyrir Skotum í síðasta leik.

Jón Þór gerir átta breytingar á byrjunarliði sínu frá því í tapleiknum á móti Skotum. Agla María Albertsdóttir, Andrea Rán Hauksdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir eru þær einu sem halda sæti sínu í byrjunarliðinu á milli leikja.

Sonný Lára Þráinsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Guðrún Arnardóttir, Svava Rós Guðmundsdóttir, Rakel Hönnudóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir  og Sara Björk Gunnarsdóttir fara allar út úr byrjunarliðinu

Í staðinn fyrir þær koma inn þær Sandra Sigurðardóttir, Ásta Eir Árnadóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Sif Atladóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir, Elín Metta Jensen, Selma Sól Magnúsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir.

Fimm leikmenn voru í byrjunarliðinu í báðum hinum leikjunum eða þær Agla María Albertsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir og fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir.

Það eru því aðeins Agla María Albertsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir sem byrja alla leiki liðsins á mótinu.

Ásta Eir Árnadóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir eru aftur á móti að byrja sinn fyrsta leik á mótinu.







Byrjunarlið Íslands á móti Portúgal í dag:

Sandra Sigurðardóttir

Ásta Eir Árnadóttir

Ingibjörg Sigurðardóttir

Sif Atladóttir

Hallbera Guðný Gísladóttir

Andrea Rán Hauksdóttir

Sigríður Lára Garðarsdóttir

Agla María Albertsdóttir

Elín Metta Jensen

Selma Sól Magnúsdóttir

Berglind Björg Þorvaldsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×