Fótbolti

Ari Freyr og félagar töpuðu fyrir Anderlecht

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ari Freyr og félagar eru að falla úr belgísku úrvalsdeildinni
Ari Freyr og félagar eru að falla úr belgísku úrvalsdeildinni vísir/getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason var í byrjunarliði Lokeren þegar liðið fékk Anderlecht í heimsókn í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Lokeren er langneðst í deildinni og það blés ekki byrlega fyrir þeim þegar Ivan Santini kom stórveldinu yfir á 16.mínútu. 

Pieter Gerkens tvöfaldaði forystuna eftir rúmlega klukkutíma leik og í kjölfarið var Ara Frey skipt af velli.

Lokeren náði að minnka muninn þar sem Jose Cevallos skoraði á 81.mínútu en nær komust þeir ekki og enn eitt tapið staðreynd hjá Lokeren sem er níu stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×