Fótbolti

Albert spilaði lokamínúturnar í sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Albert hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá AZ Alkmaar í vetur
Albert hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá AZ Alkmaar í vetur vísir/getty
Albert Guðmundsson hóf leik á varamannabekk AZ Alkmaar þegar liðið fékk Fortuna Sittard í heimsókn í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Eftir að hafa verið 1-2 undir í leikhléi komu heimamenn til baka í síðari hálfleiknum og unnu 4-2 sigur.

Albert kom inn af bekknum á 87.mínútu og lék lokamínúturnar í leiknum en staðan var orðin 4-2 þegar Alberti var skipt inná.

AZ Alkmaar styrkti þar með stöðu sína í 4.sæti deildarinnar þar sem liðið hefur 43 stig en næsta lið á eftir þeim er Vitesse í 5.sætinu með 39 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×