Leikurinn í kvöld er á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni en undanfarið eitt og hálft tímabil hefur Tottenham spilað heimaleiki sína á Wembley-leikvanginum.
Tottenham Hotspur Stadium var byggður á saman stað og gamli White Hart Lane og í raun má segja að nýju völlurinn hafi hreinlega gleypt þann gamla.
Sky Sports tók saman fróðlegt myndband sem sýnir alls framkvæmdina í tímaröð en þar má sjá þegar byrjað var að byggja nýja leikvanginn þegar gamli White Hart Lane var enn í notkun. Þetta myndband er hér fyrir neðan.
It has taken over three years from start to finish, but Tottenham's new stadium will finally host it's first official game tonight
More: https://t.co/io4cP18kmtpic.twitter.com/NuGDDhJXC6
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) April 3, 2019
Verkefnið var kynnt fyrst árið 2008 en tafðist og breyttist nokkrum sinnum þar til að framkvæmdir hófust árið 2015. Völlurinn átti að vera tilbúinn fyrir 2018-19 tímabilið en það varð átta mánaða seinkun á því að allt væri orðið klárt.
Breska ríkisútvarpið kynnti nýja Tottenham leikvanginn fyrir lesendum sínum á vefnum með þessu myndbandi hér fyrir neðan og spurði jafnframt hvort þessi völlur væri eins milljarða punda virði en það eru 158 milljarðar íslenskra króna.
£1billion well spent?
Check it out for yourself. #SpursAreHomepic.twitter.com/rGRcghZR8V
— BBC Sport (@BBCSport) April 3, 2019
Leikvangurinn kostaði vissulega gríðarlega fjármuni en hann er stærsti félagsleikvangur í London og algjört augnayndi eins og sjá má hér fyrir ofan.
Þar má líka finna allt til alls til að gera heimsóknina á Tottenham Hotspur Stadium sem bestu upplifun og mögulegt er. Meðal annars er 65 metra langur bar sem er sá lengsti í allri Evrópu. Bjórinn ætti að vera ferskur þar enda er brugghús á sjálfum leikvanginum. Það eru líka 65 veitingastaðir eða sölubásar sem selja mat.
Hér fyrir neðan má síðan sjá stutta söguskoðun hjá Tottenham og hvernig gamli og nýi leikvangurinn tengjast. Þar má einnig sjá myndband Tottenham af nýja leikvanginum sem er mjög glæsilegt mannvirki.
The journey back home.#SpursAreHome#COYS
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) April 3, 2019
Tonight, WE are coming home. #SpursAreHome#COYS
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) April 3, 2019