Fótbolti

Jafnt eftir fyrri undanúrslitaleikinn hjá Heimi og Brynjari

Anton Ingi Leifsson skrifar
Heimir Guðjónsson.
Heimir Guðjónsson. vísir/ernir
Heimir Guðjónsson og lærisveinar hans í HB gerðu 1-1 jafntefli við Klaksvík í fyrri undanúrslitaleik liðanna í færeyska bikarnum.

Heimir og félagar lentu undir eftir rúmlega hálftíma leik en Ari Olsen jafnaði metin fyrir HB í upphafi síðari hálfleiks.

Leikið er bæði heima og heiman í færeyska bikarnum en síðari leikur liðanna fer fram eftir tvær vikur.

Leiknis-maðurinn, Brynjar Hlöðversson, spilaði allan leikinn fyrir HB en þeir töpuðu úrslitaleiknum í vítaspyrnukeppni á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×