Boyd: „Hópur af strákum sem kann að vinna“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. maí 2019 22:49 Julian Boyd var bestur í úrslitakeppninni vísir/daníel
Julian Boyd var valinn besti maður úrslitakeppninnar en hann var lykilmaður í liði KR sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn sjötta árið í röð. „Við erum með lið af strákum sem kunna að vinna,“ sagði Boyd aðspurður hvað hafi skilað þessu. KR vann 98-70 sigur á ÍR í oddaleik í DHL höllinni í vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. „Þessir strákar elska hvorn annan og gefast aldrei upp. Við lentum undir í þessari seríu, jöfnuðum, lentum aftur undir en við misstum aldrei trúna.“ „Við trúum á sjálfa okkur, erum sigurvegarar og kunnum að halda ró okkar.“ Boyd endaði þennan leik með 21 stig en hann er með 22 stig að meðaltali í leik í vetur. Hann var valinn bestur í úrslitakeppninni og er búinn að vera frábær fyrir KR. „Þetta er frábært, en þetta er ekki bara ég. Mike, Kristófer, Jón, Finnur í leik fjögur, það eiga allir í liðinu smá hlut í þessum verðlaunum.“ Boyd var að spila sitt fyrsta tímabil á Íslandi og kunni hann vel við sig. „Við byrjuðum ekki eins vel og við vildum en markmiðið var að komast í úrslitin og lyfta þessum bikar. Nú þegar við höfum náð því er hægt að segja að tímabilið hafi verið árangursríkt.“ Hann gat ekki sagt hvað framtíðin bæri í skauti sér, en hvert yrði svarið ef KR leitaðist eftir kröftum Bandaríkjamannsins næsta vetur? „Ég myndi svo sannarlega taka því. Ég elska að vera hérna, þetta er frábær staður og frábær hópur fólks. Ég myndi svo sannarlega elska að vera hérna áfram,“ sagði Julian Boyd.
Dominos-deild karla Mest lesið Varð pabbi sjö mánuðum eftir að hann lést Sport Glórulaus tækling Gylfa Þórs Íslenski boltinn Gæti HSÍ orðið gjaldþrota: „Okkar að sjá til þess að svo verði ekki“ Handbolti Sjáðu markið umdeilda í Garðabæ: „Ekki var hann hræddur við Örvar?“ Íslenski boltinn Borgaði ósáttum aðdáanda eftir rothögg Stefáns Inga Fótbolti „Síðast þegar ég sá svona atriði var það Petersson í Austurríki“ Handbolti „Er allavega engin þreyta í mér“ Fótbolti „Vælum og öskrum þó við meiðum okkur ekki neitt“ Íslenski boltinn Hittu misáhugasama Íslendinga: „Ég á selló, ég fylgist ekki með fótbolta“ Fótbolti „Get ekki setið við hliðina á þér lengur“ Fótbolti Fleiri fréttir „Erum að gera þetta fyrir samfélagið“ „Hefðum þurft tvö til þrjú stemningsskot“ „Góðir leikmenn sem taka góðar ákvarðanir“ „Erfitt að vinna okkur þegar við spilum svona“ „Erfitt að spila við þessar aðstæður“ „Aldrei séð annan eins mun á villufjölda“ Hamar/Þór og KR í kjörstöðu Uppgjörið: ÍR - Stjarnan 82-90 | Garðbæingar komnir með annan fótinn í undanúrslit Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 107-96 | Undanúrslitin í augsýn Sigursælastar í sögu háskólakörfuboltans Lögmál leiksins: Hver verður MVP í NBA? Lakers vann toppliðið í vestrinu „Vorum bara heppnir að landa þessu“ „Orkustigið var skrítið út af okkur“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 90-86 | Einvígið í járnum eftir tæpan sigur Grindjána Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 93-96 | Stólarnir í góðri stöðu eftir dramatík Martin flottur í stórsigri Skelltu sér í jarðarför Hauka „Hvílíkur léttir að vera loksins komin inn á völlinn aftur“ Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 89-72 | Njarðvík með annan fótinn í undanúrslitum „Ég er mjög mikill fullkomnunarsinni“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 102-75 | Valskonur komnar í draumastöðu Tólf ára fangelsi fyrir að svindla á NBA stjörnum Finnur Freyr framlengdi til 2028 „Erum í basli undir körfunni“ „Það erfiðasta er ennþá eftir“ Ármann, Fjölnir og Breiðablik kláruðu öll einvígin sín 3-0 Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Haukar 87-73 | Deildarmeistararnir komnir með bakið upp að veggnum Uppgjör: Tindastóll-Keflavík 78-90 | Keflavík ekki í vandræðum í Síkinu Martin með tíu stoðsendingar í Euroleague í kvöld Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Haukar 87-73 | Deildarmeistararnir komnir með bakið upp að veggnum