Fótbolti

Enn eitt draumamarkið hjá Zlatan í Bandaríkjunum | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zlatan fagnar markinu í nótt.
Zlatan fagnar markinu í nótt. vísir/getty
Hinn 37 ára gamli Zlatan Ibrahimovic virðist eiga nóg eftir ef mið er tekið af markinu stórkostlega sem hann skoraði fyrir LA Galaxy í nótt.

Það var með glæsilegri hjólhestaspyrnu gegn New England. Hvernig Zlatan undirbýr spyrnuna var ekki síðra. Þvílíkir töfrar sem eru enn í tánum á Svíanum.





Því miður fyrir Zlatan þá skilaði þetta mark engum stigum því Galaxy tapaði leiknum, 2-1.

Þetta var fyrsti leikur Bruce Arena, fyrrum landsliðsþjálfara Bandaríkjanna, með New England og hann byrjar á því að leggja Zlatan. Ekki ónýt byrjun það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×