Fótbolti

Fyrir ári síðan vann Nígería sigur á Íslandi en í dag töpuðu þeir gegn Madagaskar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Óvænt tap Nígeríu í dag.
Óvænt tap Nígeríu í dag. vísir/getty
Stórþjóðin Nígería tapaði 2-0 fyrir Madagaskar í síðustu umferð A-riðilsins í Afríkukeppninni í dag.

Nígería var fyrir leikinn komið áfram í 16-liða úrslitin svo þeir hvíldu nokkra lykilmenn í dag.

Madagaskar var 1-0 yfir í hálfleik og í síðari hálfleik bættu þeir við öðru markinu. Lokatölur 2-0 sigur Madagaskar.

Fyrir ári síðan vann Nígería 2-1 sigur á Íslandi á HM í Frakklandi en nú ári síðan tapa þeir fyrir Madagaskar.

Á sama tíma vann Gínea 2-0 0sigur á Búrúndí en Madagaskar endar með sjö stig á toppi riðilsins. Óvænt úrslit það.

Nígería endar númer tvö með sex stig, Gínea í þriðja með fjögur og Búrundí á botninum án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×