Fótbolti

Leikmaður Leipzig skoraði eina mark kvöldsins í Afríkukeppninni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Amadou Haidara fagnar ásamt liðsfélögum sínum.
Amadou Haidara fagnar ásamt liðsfélögum sínum. vísir/getty
Það var einungis eitt mark skorað í kvöldleikjunum í Afríkukeppninni er síðasta umferðin í E-riðlinum fór fram.

Á 34. mínútu skoraði Amadou Haidara, leikmaður Leipzig, eina markið er Malí vann 1-0 sigur á Angóla.





Máritanía og Túnis gerðu markalaust jafntefli í hinum leik kvöldsins en Malí endar á toppi riðilsins með sjö stig.

Túns endar í öðru sætinu með þrjú stig og er einnig komið áfram en Túnis og Máritanía sitja eftir með tvö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×