Nítján ára táningur sendi Hjört og félaga áfram í Evrópukeppninni Anton Ingi Leifsson skrifar 1. ágúst 2019 20:01 Lindström fagnar síðari markinu. vísir/getty
Hjörtur Hermannsson og félagar í Bröndby eru komnir áfram í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar eftir sigur á pólska liðinu Lechia Gdansk eftir framlengdan leik í kvöld. Bröndby tapaði fyrri leiknum 2-1 en mættu ákveðnir til leiks í kvöld og komust yfir eftir stundarfjórðung. Eftir hornspyrnu kom Paulus Arajuuri boltanum í netið. Þannig stóðu leikar í hálfleik en á 53. mínútu skoraði Kamil Wilczek Bröndby í 2-0 eftir góða fyrirgjöf. Þrettán mínútum síðar minnkuðu gestirnir muninn í leik kvöldsins og jöfnuðu samanlagt. Því þurfti að framlengja. Rétt áður en framlengingin hófst kom hinn nítján ára gamli Jesper Lindström inn á. Hann skoraði þriðja mark Bröndby á 94. mínútu og fjórtán mínútum síðar skoraði hann annað mark sitt og fjórða mark Bröndby. Lokatölur 4-1 sigur Bröndby og samanlagt 5-3 en Hjörtur lék allan leikinn í vörn Bröndby og gerði vel í kvöld. Flottur leikur hjá Fylkismanninum en Bröndby mætir FH-bönunum í Braga í næstu umferð.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Harmur Egypta gæti orðið Íslendingum til happs Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti Króatísk goðsögn segir Dag og Cindric hafa lent í rifrildi Handbolti Gætið ykkar: Nýi Balic sem fékk ekki númerið hans Arons Handbolti Setti Íslandsmet í klassískri bekkpressu í gær Sport Hitað upp í Zagreb fyrir risaleik við Slóvena Handbolti Spjót beinast að Degi sem segir orðróm um rifrildi rangan Handbolti Strákarnir okkar gætu verið ofar og neðar en Slóvenar á sama tíma Handbolti Í beinni: Slóvenía - Ísland | Leikur sem skiptir öllu máli Handbolti Fleiri fréttir Mbappé með slæmar fréttir fyrir mótherja Real Madrid Arnar fer með Ísland til Skotlands Sölvi tekinn við Víkingum með Viktor og Aron til aðstoðar Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Elísabet tekin við Belgum Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Neymar á heimleið? „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Sjöunda tap Leicester í röð Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Sjá meira