Fótbolti

Gunnhildur Yrsa lagði upp mark í svekkjandi tapi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gunnhildur Yrsa hefur leikið alla leiki Utah á tímabilinu.
Gunnhildur Yrsa hefur leikið alla leiki Utah á tímabilinu. vísir/getty
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lagði upp mark Utah Royals í 2-1 tapi fyrir Chicago Red Stars í bandarísku úrvalsdeildinni í nótt.

Þetta var fjórða tap Utah í röð. Liðið er í 5. sæti deildarinnar, þremur stigum frá 4. sætinu sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni.

Utah á aðeins einn leik eftir en Seattle Reign, sem er í 4. sætinu, tvo.

Chicago komst yfir á 40. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar lagði Gunnhildur Yrsa upp mark fyrir bandarísku landsliðskonuna Christen Press.

Sigurmark Chicago kom á 85. mínútu og Gunnhildur Yrsa og stöllur hennar þurftu því að sætta sig við svekkjandi tap.

Gunnhildur Yrsa hefur leikið alla 23 leiki Utah á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×