„Hvað veldur því að fólk vill verja vetrinum fjarri Íslandi, og á helst á Spáni?“ spyr Sigurjón M. Egilsson sem heldur úti vefsíðunni Miðjunni í upphafi færslu þar sem hann ber saman búsetu á Spáni og Íslandi.
Hann segir að þar ráði tvennt mestu. Veður og verð. Þetta er ekki flókið. Og veðrið í Alicante er nú þegar þetta er skrifað brakandi blíða; gola, 25 stiga hiti og sól.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá voru 699 Íslendingar skráðir með búsetu á Spáni þann 1. desember 2018. Utanríkisráðuneytið býr að öðru leyti ekki yfir upplýsingum um Íslendinga sem þar kunna að dveljast til lengri eða skemmri tíma. Svo segir í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. En, víst má telja að þeir séu miklu fleiri sem ekki hafa skráð búsetu sína á Spáni sérstaklega. Vísir þekkir til margra sem hafa þann háttinn á.
Heimavöllurinn er Las Ramblas
Sigurjón, sem hefur þann háttinn á að hafa vetursetu á Spáni og lætur vel að sér og þeim hjónum. Hann lýsir þessu nánar á sinni síðu og segir veðrið á Spáni opna ótal möguleika til þægilegrar útiveru.„Okkar útivera er golf. Golfið er dýrast af öllu. Við borgum um nærri 30.000 á mánuði hvort í þá sex mánuði sem við hyggjumst vera hér. Kristborg [Hákonardóttir] er sjúk í golf, og ég fylgi. Það lætur nærri að hver hringur kosti hvort okkar um 1.100 krónur. Sem sagt, ekki svo dýrt ef mikið er spilað.“
Þau hjónin Sigurjón og Kristborg eru nú með sinn heimavöll Las Ramblas sem fjöldi Íslendinga sem hafa farið til Spánar til að leika golf þekkja.
Leigja þriggja herberga íbúð á 73 þúsund krónur
Hjónin leigja nýlega og fína þriggja herbergja íbúð í nýlegri blokk á 550 evrur á mánuði.„Borguðum að mestu þegar við pöntuðum. Þá var krónan öflugri en hún er í dag. Húsaleigan kostar okkar rétt um 73.000 á mánuði,“ skrifar Sigurjón og heldur áfram að bera saman hvað fæst fyrir peninginn.
Sigurjón lýsir aðstæðum, í garðinum hafa þau sundlaug en hún er ekki heit.
„En karl eins og ég sem á meðal annars tíu vetrarvertíðir að baki lætur kalt vatn ekki stöðva sig. Stuttur sundsprettur og afslöppun á bakkanum er fínt. Minnir á kalda pottinn í lauginni heima. Lagar margt að fara úr hita í kulda og svo áfram og áfram.“
Hefðbundið „myllubrauð“ kostar 85 krónur
Sigurjón, sem gamall fréttahundur og meðal annars sem fyrrverandi blaðamaður á DV undir ritstjórn Jónasar Kristjánssonar, áttar sig vel á mikilvægi neytendafrétta. Því víkur nú sögunni að kaupum á nauðsynjum og öðrum lífsins gæðum.„Hefðbundið „myllubrauð“ kostar hér 85 krónur og fyrir þau sem drekka kostar vodkaflaska 885 krónur. Þvottur í bílaþvottastöð kostar um 700 krónur. Við þurfum að kaupa allt neysluvatn. Átta lítra tankur kostar um 110 krónur. Kjörið að kippa honum með þegar farið er í búðarferð og lítið er keypt og lítið þarf að bera.“
Sigurjón lofar lesendum sínum að hann muni gera grein nánar fyrir því hvað karfan kostar á Spáni.
Ljómandi læknaþjónusta
Sigurjón gerir einnig læknisþjónustu á Spáni að umfjöllunarefni, segir þau hjónin ekki hafa reynslu af slíku, þau hafa ekki þurft að leita sér læknisaðstoðar.„Annað fólk, sem það hefur reynt, er mjög sátt. Apótekin hér eru fín. Ég er rati þegar kemur að þeirri deild en Kristborg segir mér að hún fái afgreidd lyf hér sem er ekki möguleiki á að fá heima án lyfseðils. Og verðið er víst allt annað hér.
Helsti kosturinn við að vera hér í hitanum er samt sá, að bilaðir og slitnir skrokkar eru bara allt aðrir og betri í hitanum.“