Hvað er Kombucha Iceland og hefur drykkurinn áhrif á heilsuna? Kombucha Iceland kynnir 5. nóvember 2019 14:15 Kombucha Iceland er ógerilsneyddur og því með miklu magni af góðgerlum sem taldir eru hafa góð áhrif á þarmaflóruna. Kombucha Iceland
Kombucha er léttkolsýrður svaladrykkur ættaður frá Asíu, eða raunar grænt eða svart te (Camellia sinensis) sem síðan er bætt í sykri og það látið gerjast. Kombucha Iceland er aðeins með því sykurmagni sem þarf til að næra gerilinn sem í honum er. Gerjunin er svipað ferli og við framleiðslu á jógúrti, súrkáli, bjór eða víni. Þessi heillandi drykkur er ógerilsneyddur og því með miklu magni af góðgerlum sem taldir eru hafa góð áhrif á þarmaflóruna. Hin síðari ár hefur athygli beinst æ meir að þarmaflóru okkar og mikilvægi hennar fyrir heilsufar, jafnt andlegt sem líkamlegt.Hefð fyrir gerja matvæli á æskuheimilinu á KúbuKombucha Iceland kom fyrst á markað í ágúst 2017, framleitt af fjölskyldufyrirtæki í eigu hjónanna Rögnu Bjarkar Guðbrandsdóttur og Manuel Plasencia Gutierrez. Þau höfðu raunar lengi bruggað sitt eigið Kombucha. Það hjálpaði Manuel með meltingarvandamál en einnig hafði Manuel, sem er frá Kúbu, mikinn áhuga og raunar ástríðu fyrir því að gerja matvæli enda var rík hefð fyrir því á æskuheimili hans á Kúbu. Kombucha drykkir voru á þessum tíma ekki fáanlegir á Íslandi og því kviknaði þessi viðskiptahugmynd að setja á fót fyrirtæki til að gefa fleirum tækifæri á að njóta þessa ágæta drykkjar sem þau eru fullviss um að hefur jákvæð áhrif. Drykkurinn fékk heitið Kombucha Iceland.Krækiberin tínd í BorgarfirðiVið framleiðsluna er aðeins notað lífrænt og ferskt hráefni og helst eins mikið íslenskt og kostur er og auðvitað íslenskt vatn. Til dæmis kemur öll fjölskyldan saman og tínir krækiberin í krækiberjadrykkinn í Borgarfirði og njóta um leið góðrar samveru. Kombucha Iceland var upphaflega aðeins selt í Frú Laugu en fæst nú víða um land og m.a. í Krónunni. Á nokkrum stöðum eru áfyllingarstöðvar og hægt að koma með eigin flöskur til að fylla á. Kombucha Iceland fæst í mörgum ljúffengum bragðtegundum, t.d. krækiberja, glóaldin, engifer og jarðarberja svo einhverjar séu nefndar. Á vefsíðunni kubalubra.is er hægt að sjá hvar drykkurinn fæst og fræðast nánar um innihald hans. Kombucha hefur breiðst hratt út um allan heim á undanförnum árum og vinsældir Kombucha Iceland hafa sömuleiðis vaxið stöðugt frá því hann kom hér á markað enda bæði ferskur, svalandi og nærandi og með mjög litlum sykri.Ánægja með drykkinnMargir hafa sannreynt á sjálfum sér jákvæð áhrif Kombucha Iceland og Ragna og Manuel heyra mikið frá fólki sem er mjög ánægt með drykkinn og notar hann að staðaldri. Ragna og Manuel fullyrða ekkert um heilsufarslegan ávinning þess að drekka Kombucha Iceland. Sjálf eru þau hins vegar ekki í vafa um ágæti drykkjarins og góð áhrif hans á heilsuna. Það er meginástæða þess að þau hófu framleiðslu vörunnar til að auðvelda fólki aðgengi að henni. Manuel, sem er með bakgrunn í vísindum, bendir á að víða um heim standi nú yfir fjöldi rannsókna á kostum Kombucha og þegar hafa einhverjar niðurstöður verið birtar.Taktu þátt í leikEf þig langar til að prófa Kombucha Iceland þá geturðu skoðað hvar drykkurinn fæst á vefsíðunni. Svo geturðu tekið þátt í leiknum hér fyrir neðan og freistað þess að vinna eina af þremur gjafakörfum með flöskum af þessari góðu vöru í báðum stærðum, Big Book of Kombucha, Scoby-gerli og áfyllingarkorti fyrir drykkinn. Hægt er að fylgjast með nýjungum á Instagram og Facebook síðum Kombucha Iceland.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Kombucha Iceland.Loading…
Heilsa Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Fleiri fréttir Má augnskugginn þinn fara í kringum augun? Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? Sjá meira