Sailesh er einn vinsælasti og eftirsóttasti dávaldur heims um þessar mundir. Hann er þekktur fyrir krassandi sýningar og hefur MTV til dæmis kallað hann „fyndnasta, óritskoðaða dávald jarðar." Sýningin sem hann mætir með í Laugardalshöllina er sögð fyndnari, grófari og öfgakenndari en áður og allt verði látið flakka. Tveir og hálfur klukkutími stútfullir af ótrúlegum uppákomum þar sem áhorfendur verða að stjörnum sýningarinnar, fyrir framan vini og vandamenn sem gráta af hlátri við að sjá félaga sína fara á kostum á sviðinu.
Frá fyrstu heimsókn Sailesh hingað til lands
„Amma er velkomin, ef hún er ekki hjartveik og hefur mikinn húmor,“ segir hann sposkur og viðurkennir að grínið gæti gengið fram af einhverjum. „Sumir gætu örugglega móðgast eitthvað. Ég hef tekið prógrammið aðeins í gegn yfir árin. Samfélagið hefur auðvitað breyst. Í dag þarf að fara varlega í suma hluti. En ég er ekkert fyrir pólitíska rétthugsun. Það verður látið reyna á mörkin,“ segir hann.

„Sjúklega fyndin sýning! Ég hef ekki hlegið svona mikið í mörg ár." - R.R., Miami Herald.
„Taktu með þér vasaklút og hreinar nærbuxur. Ég lofa því að þú munt gráta af hlátri og það eru góðar líkur á því þú missir þvag að auki." - P.V, Arizona Daily Star.
„Ég hló eins og brjálæðingur. Fór aftur á sýninguna — og hló eins og geðsjúklingur. Drottinn minn dýri, ég hef aldrei lent í öðru eins." - M.R., Reno Gazette-Journal
Sailesh sló fyrst í gegn hér á landi fyrir fimmtán árum. Hann kom aftur með hressilegt prógramm fyrir fjórum árum og segist hlakka til að hrista upp í áhorfendum enn og aftur. Hann ætlar sér að dvelja nokkra daga í Reykjavík. „Ég eignaðist góða vini á Íslandi þegar ég kom fyrst. Við höfum haldið sambandi gegnum árin og ég ætla að nota tækifærið og eyða tíma með þeim.“
Sýningin í Laugardalshöllinni verður bönnuð innan 16 ára og er um takmarkað magn miða í boði. Miðasalan hefst Fimmtudaginn 12. nóvember kl 12.00 á Miða.is
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Teamwork Event.
Uppfært: Aldurstakmark á sýninguna ér 18 ár.