Nítján marka sigur Vals í Eyjum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. nóvember 2019 16:24 Sandra skoraði átta mörk á sínum gamla heimavelli. vísir/daníel
Valur vann stórsigur á ÍBV, 14-33, þegar liðin mættust í Vestmannaeyjum í Olís-deild kvenna í dag. Með sigrinum endurheimtu Valskonur toppsæti deildarinnar. Þær eru einu stigi á undan Frömurum. Eyjakonur eru áfram í 7. sætinu með sín þrjú stig. Eins og lokatölurnar gefa til kynna hafði Valur gríðarlega mikla yfirburði í leiknum. Íslandsmeistararnir voru tólf mörkum yfir í hálfleik, 5-17. Bilið breikkaði í seinni hálfleik og Valskonur unnu á endanum 19 marka sigur, 14-33. Eyjakonan Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði Vals með átta mörk. Önnur Eyjakona, Díana Dögg Magnúsdóttir, skoraði fimm mörk líkt og Vigdís Birna Þorsteinsdóttir. Íris Björk Símonardóttir og Andrea Gunnlaugsdóttir vörðu samtals 18 skot í marki Vals, eða 56,3% þeirra skota sem þær fengu á sig. Á meðan vörðu markverðir ÍBV aðeins sjö skot (17,5%). Ásta Björt Júlíusdóttir skoraði helming marka ÍBV, eða sjö. Skotnýting Eyjakvenna var aðeins 30,4% og þá töpuðu þær boltanum 23 sinnum í leiknum.
Olís-deild kvenna Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Fótbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Fótbolti „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: ÍR - ÍBV | Eyjakonur reyna að valda usla í Breiðholti Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Stór helgi að Hlíðarenda: Stefnan sett á undanúrslit Gríðarleg spenna á toppnum Orri Freyr magnaður þegar það leið yfir annan dómarann Kennir sjálfum sér um ófarir Gísla Haukar halda sér í toppbaráttunni Janus Daði öflugur í súru tapi Mögnuð Elín Klara þegar Haukar unnu Stjörnuna Elvar Örn öflugur og Melsungen áfram á toppnum Selfoss sá ekki til sólar á Hlíðarenda Íslendingalið Benfica og Gummersbach halda í vonina Þriðja landsliðskona liðsins orðin ófrísk Ýmir sneri aftur í góðum sigri Reynsluboltinn fann sér nýtt lið Gísli stórkostlegur í toppslagnum ÍBV vann Gróttu sem hefur beðið í 136 daga Óðinn Þór markahæstur að venju KA/Þór beint aftur upp í deild þeirra bestu Heimsmeistararnir gengu frá lærisveinum Guðjóns Vals „Vorum nokkurn veginn búnir að kortleggja þetta“ Uppgjörið: Haukar - Jeruzalem Ormoz 31-23 | Öruggt hjá Haukum gegn slöku slóvensku liði Valsmenn skoruðu 48 í Breiðholti Sjá meira